Látum stjórnarmenn Lífeyrissjóða lifa á svona skiptimynnt.

Þetta nær auðvitað ekki nokkurri átt að fólk sem er í forsvari fyrir þessi mál skuli virkilega geta horft framaní annað fólk og sagt að þetta eigi að duga fyrir því sem þarf á landi þar sem allt er á okur verði og allt sem við kemur húsnæði og lífsins nauðsynjum er glæpsamlega dýrt.

Ég myndi persónulega aldrei geta dregið fram lífið á þessu bull bótum hvernig sem ég myndi herða sultarólina.það eru nú ekki nema vist mörg göt á sultarólinni og þegar á síðasta gat er komið þá  missir maður allt niður um sig mjög fljótlega.

Það er einn alþingismaður sem þykir þessi hópur hafa full gott og að þetta sé bara kellingavæl að segja að þetta sé of naumt í askana látið.

Þetta er hann Pétur Blöndal sá öðlingur sem seldi fyrirtækið sitt á nokkur hundruð milljónir og Bankabókin og tékkreikningurinn hans er ekki alveg á leiðinni að tæmast á næstunni.En hann getur leift sér að segja að öryrkjar eigi bara að geta haft það fínt og maður fær á tilfinninguna eftir að hann líkur máli sínu að það hljóti að vera nóg afgangs til að leggja í sjóð til elli árana af öllum auðnum sem eftir er um hver mánaðarmót.

Og svo er nokkuð víst að hann þarf ekki að bíða fyrir utan Fjölskylduhjálpina eftir jólamatnum þessi jólin frekar en þau síðustu.

En einn Alþingismaður á skilið mikið hrós og þakkir og ég skyldi glaður fara á hnén í virðingarskyni fyrir þá  konu sem heitir Jóhanna Sigurðardóttir.

Þvílíkt heil og sanngjörn í sínum baráttumálum og ekki er hún að moka undir sinn hag eða eingöngu að berjast fyrir þá auðugu þar sem hún fengi meira klapp á bakið og greiða bak við tjöldin.

Það kemst engin með tærnar þar sem hún hefur hælana og enginn nennir að berjast fyrir hag þeirra lægst settu í þjóðfélaginu eins og hún.Frábær kona, ég segi það aftur.

FRÁBÆR KONA !!!!!!! Og heil í gegn.

Ég er ekki mjög pólitískur og það getur vel verið að ég telji ekki einhverja fram sem eiga hól skilið en þetta eru einstaklingar sem ég hef tekið eftir sérstaklega vegna þessara mála þó það séu vissulega mismunandi góðverkin sem hægt er að telja upp hjá Pétri eða JÓHÖNNU.

Ég er líka svo heppinn að vera ekki í þeim sporum að vera öryrki eða í þeim ólukku sporum að verða fyrir þessum löglega þjófnaði lífeyrissjóða en ég er bara búinn að fá mig fullsandann á þessu bulli hérlendis að þessar smánar fjárhæðir eigi að duga fólki til að draga fram lífið.

Það vita allir sannleikann, það er ekki hægt fyrir eðlilegt fólk!Hættið að snúa blinda auganu að vandamálinu.

Ráðamenn, Stjórnir lífeyrissjóða og Alþingismenn, skammtið ykkar heimili samskonar fjárhæð 1. mánuð og sjáið hvar það endar.Mig grunar að eftir fyrstu vikuna væri ísskápurinn tómur og á annarri viku væru reikningar farnir að safnast upp, á þriðju viku væruð þið komnir með þunglyndi og á 4 viku væruð þið vonandi farnir að berjast fyrir bættum kjörum þessa hóps.

Kannski full bjartsýnn en sakar ekki að vona það besta,Vonin er stundum það eina sem fólk hefur til að hugga sig við.

Ég varð allveg kjaftstopp þegar ég heirði að bætur manns sem missti allgerlega báða handleggii farið úr 170 þúsund í 105 þúsund á mánuði.

Halda lífeyrissjóðir að það kosti minna að lifa ef maður er handalaus ? Það getur verið að hann geti ekki barið í borðið og krafist mannsæmandi og raunhæfrar fjárhæðar til að lifa af mánuðinn en hann getur svo sannarlega orðið blankur og áhyggjufullur eins og aðrir og þegar svona er ástatt fyrir fóki liggur í augum uppi að það þarf að leggja í ýmsann kostnað og aðstoð sem heilbrigt fólk þarf ekki að hugsa um.

Prufið að nota ekki handleggina í 1.dag.Glætan segi nú bara og gangi ykkur vel.

Öryrkjar og aldraðir að hafa flestir endalausar peninga áhyggjur eins og allt sem fyrir er að sé ekki nóg fyrir sálartetrið.Djíses hvað þetta er absúrd þegar sumir eru syndandi í peningum og hafa ekkert við allan þennan auð að gera nema að ávaxta hann meira og hækka fjárhæðina.Vonlaust að nýta þetta til venjulegs lífs. Sæi ekki högg á vatni. 

Það þarf oft að slá fólk svo það finni sársaukann.Sumir þurfa að hvernig það er að verða blankir til að skilja hvernig það er að vera blankur.Annars er þeim alveg sama.


mbl.is Öryrkjar vilja aðgerðir strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott hjá þér ,ég er þér algjörlega  SAMMÁLA.

DAG EFTIR DAG   ER ÉG ORÐLAUS   OG MEIRA TIL.     ANDLAUS!

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 8.12.2007 kl. 10:57

2 identicon

Láttu ekki þér ekki detta í hug að stjórnarmenn lífeyrisjóðanna lifi af lífeyrisgreiðslum, ég veit td að einn stjórnarmaður í Lífeyrisjóði hefur á mánuði jafnt og öryrki á ársgrundvelli, þetta er fólkið sem tekur ákvarðirnar..

hversvegna var fólk að greiða í Lífeyrisjóði í áratugi og eiga svo ekki rétt á greiðslum úr sjóðunum ef það veiktist alvarlega og eða slasaðist alvarlega á lífsleiðinni og afleiðingarnar að verða öryrki, það er engin sem óskar sér þess að lenda í því að verða öryrki, það er einnig brotalöm í lögum og reglum um öryrkja, þannig að lífeyrissjóðirnir nota sér það, það er fólkið sjálft sem á Lífeyrissjóðina en ekki stjórnendur þess, en líklega er einn lífeyrisjóður sem er orðin einskonar einkavinavæddur þ.e Lífeyrissjóðurinn GILDI, enda eru það fyrir í stjórn helgráir andstaðingar almennings þeir Vilhjálmur Egilsson hjá SA Samtök Atvinnulífsins og Friðrik A Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ Landsambandi Íslenskra Útgerðamanna.

og eru þeir taldir vera upphafsmennina sem standa að þessum skerðingum hjá öryrkjum og aðrir lífeyrissjóðir elta þá, því nú eru þeir farnir að reka GILDI sem grjótharðann bisness, enda hafa atvinnurekandur til lands og sjávar fengið að ganga á sjóðinn vegna lántöku en eigendurnir lífeyrigreiðendurnir eru lokaðar dyr.

eftir lögum og reglum um upphafs lífeyrisjóðanna á það ekki að vera hægt að atvinnurekendur eignist sjóði almennings(lífeyrssjóðina) eitthvað er ekki í lagi hjá löggjafarvaldinu , nema það hafi í einhverju laumi breitt lögunum í gegnum tíðinna í Ríkistjórnum Davíðs Oddssonar, þessvegna séu harðir xD menn búnir að yfirtaka sjóði almennings, ég hef haldið því fram að það standist ekki lög að atvinnurekendur geti eignast lífeyrissjóði eins og með þetta dæmi um GILDI, minnir að það hafi verið 7-8 lífeyrissjóðir sem voru innlimaðir í þennann sjóð atvinnurekanda ........þá er spurning kusu lífeyrsgreiðendur þetta eða afhentu stjórnir lífeyrsjóðanna sjóði sína þessum útvöldu án þess að spyrja eigendurna af því, gott ef þetta er ekki mál til rannsóknar og jafnvel lögreglurannsókn , hvernig var að því staðið að afhenta sjóðina inn í nýtt fyrirtæki sem heitir Lífeyrsjóðurinn GILDI  eign SA- Samtök Atvinnulífsins (fyrirtækjanna)

tbee

TBEE (IP-tala skráð) 8.12.2007 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Riddarinn

Höfundur

Riddarinn
Riddarinn

Með mínar skoðanir og stundum þarf að segja þær hreint og beint 

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 82E338CD-F075-4AB9-9F84-2AEDE82C466D
  • image
  • ...imgp0201
  • ...imgp0200
  • ...imgp0202

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband