Hálfhugsuð þvæla í reglugerðum

Er ekki allt í lagi með þá sem eru að setja þessar reglur?

Dettur þessu reglugerðar bullukollum virkilega í hug að það sé hægt að breyta þessu með einu pennastriki og hleypa þessum 25 kílómetrum snigla hraða inn í umferðina þar sem þessi hjól verða bara keyrð í klessu og þeir einstaklingar sem þau keyra kemba ekki hærunar oftar eftir að eitt stykkifólksbíll hefur limlest þau.

Svo verða þessi hjól rándýr með tolla á við létt bifhjól sem bera geðveik gjöld og tryggingar og út í hött að versla svona hæg gengt dótarý fyrir mörg hundruð þúsund Íslenskar Gullkrónur til að vera á skriðhraða innan um stórhættulega umferð á margfallt meiri hraða.

En það er hins vegar ekki góður kostur að hafa einhverja ábyrgðarlausa krakka eða unglinga sem eru því miður oft tillitslausir og virðist standa á sama um allt nema sjálfa sig sikk sakkandi á milli gangandi vegfarenda sem eru á miklu minni hraða og eru í stórhættu að fá þessi hjól á sig sem geta hæglega stórslasað fólk sem fyrir þeim verður.

Það virðist vera sem reglugerðar bjálfarnirá Íslandi haldi að við séum staddir í Danmörku þar sem eru sér afmarkaðir hjólastígar fyrri svona hjól og reiðhjól en hins vegar engir fótgangandi í hættu né bílar sem eru á allt öðrum hraða því þeir eru á akrein sem hentar þeirra hraða.

Það þarf engan snilling að sjá að lítið farartæki sem er á 25 kílómetra hraða á enga samleið á akrein þar sem eru stórir bílar á 50-80 kílómetra hraða og það er ekki spurning um hvort heldur hvað margir  koma til með að láta lífið ef þessi hjól fara á almenna vegi í þeirri umferð og hraða sem þar á sér stað.


mbl.is Herða reglur um nýju fararskjótana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það hefur nú aldrei verið hátt vitmunastigið á alþingi.

landið eins og það er og þetta dettur þeim í hug, ofurskattar, álögur og gjöld á hjól.

hefði einmitt vantað að fá þessi hjól meira inn, hækkandi bensínverð er orðið þannig. (mun aldrei lækka, bara hækka, útí hið óendanlega.)

þetta minnir mann svoldið á fyrstu járnbrautarlestirnar, fólk var í fyrstu hrædd við að það gæti dáið ef það færi yfir 25km hraða.

sveinn sigurður ólafsson (IP-tala skráð) 18.3.2012 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Riddarinn

Höfundur

Riddarinn
Riddarinn

Með mínar skoðanir og stundum þarf að segja þær hreint og beint 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 82E338CD-F075-4AB9-9F84-2AEDE82C466D
  • image
  • ...imgp0201
  • ...imgp0200
  • ...imgp0202

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 85077

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband